flugfréttir

Ólöglegur innflutningur á ketti kostar flugfélagið 3 milljónir

- Leyfði farþega að fara um borð í flug til Bretlands með kött án leyfis

22. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:39

Farþeginn fékk að fara um borð í flugvélina með kött í búri án þess að hafa nein tilskilin leyfi

Dómstóll í Bretlandi hefur fellt dóm í máli Ukraine International Airlines eftir að flugfélagið leyfði farþega að fara um borð með kött í flugi til Bretlands án leyfis.

Með þessu voru brotin lög er varða innflutning á dýrum en ströng lög eru í Bretlandi varðand dýrainnflutning vegna sjúkdómahættu.

Málið varðar farþega sem fékk að fara um borð í þotu Ukraine International Airlines í Íran í desember í fyrra með kött í farangursrými en hann flaug með félaginu til London Gatwick með viðkomu í Kænugarði.

Farþeginn hafði enga pappíra í fórum sínum varðandi flutning kattarins og þá var kötturinn í búri sem uppfyllti ekki skilyrði Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA).

Málið fór inn á borð hjá dómstóli í bænum Worthing og var Ukraine International Airlines sakað um að hafa brotið innflutningslög sem snúa að vörnum gegn hundaæði og einnig fyrir brot á lögum sem varða velferð á dýrum.

Boeing 737 þota Ukraine International Airlines á London Gatwick flugvellinum

Peter Aston, þingmaður í West Sussex á Englandi, segir að um mikla ógn hafi verið að ræða þar sem kötturinn hefði getað komið af stað hundaæði í Bretlandi og sé málið litið alvarlegum augum en hundaæði hefur ekki fundist á Englandi, þökk sé ströngum reglugerðum um dýrainnflutning.

Undir venjulegum kringumstæðum hefði kötturinn þurft að gangast undir langt ferli þar sem hann er m.a. bólusettur gegn ýmsum sjúkdómum áður en fær að fara til Bretlands.

Málið var tekið fyrir í dómi þann 19. október sl. og hefur Ukraine Internatinal Airlines verið gert að greiða sekt upp á 3,4 milljónir króna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga