flugfréttir
Júmbó-þota fór út af braut í flugtaki
Júmbó-fraktþotan frá Saudia Cargo á Maastricht-flugvellinum í gær
Júmbó-fraktþota af gerðinni Boeing 747-400F frá Saudia Cargo fór út af braut í flugtaki á flugvellinum í Maastricht í hollandi í gærkvöldi.
Vélin, sem er í eigu MyCargo Airlines, var í flugtaki á leið til Jeddah þegar atvikið átti sér stað en vélin
fór hægra megin út af brautinni snemma í flugtaksbruninu.
Neyðarteymi var kallað á vettvang en engann sakaði. Talið er að vandamál
í einum af fjórum hreyflum vélarinnar hafi orsakað atvikið.
Flugvellinum í Maastricht var lokað í kjölfarið og er unnið að því að koma þotunni
upp á steypt yfirlag en vélin staðnæmdist að hluta til með hjólabúnaðinn á graslendi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.