flugfréttir

Fyrstu cadet-flugnemarnir hefja nám hjá Keili

- Fyrstu nemendur á flugnámsbraut Icelandair og Flugakademíu Keilis

17. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:25

Fyrsti hópurinn til að hefja cadet-flugnám á Íslandi

Fyrsti hópur nemenda á flugnámsbraut (cadet-nám) Icelandair hóf nám í Flugakademíu Keilis í dag, 17. nóvember.

Alls voru innritaðir 26 nýnemar, þar af tuttugu cadet-nemendur, og er þetta fjórði bekkurinn sem hefur samtvinnað atvinnuflugmannsnám hjá Keili á þessu ári.

Þetta er í fyrsta skiptið sem boðið er upp á cadet-nám hér á landi en þar býðst nemendum meðal annars aðstoð við fjármögnun námsins auk þess sem þeir njóta forgangs til starfa hjá Icelandair að námi loknu. Áætlað er að fyrstu cadet-nemendur Keilis geti hafið störf hjá félaginu sumarið 2019.

Á undanförnum árum hefur Icelandair ráðið til sín 50 - 60 flugmenn árlega og gert er ráð fyrir að fjöldinn verði svipaður á næstu árum.

Hópirinn sem hóf nám í dag mun útskrifast vorið 2019

„Þessi leið við nám og þjálfun nýrra flugmanna er þekkt meðal alþjóðlegra flugfélaga og við viljum fara þessa leið til þess að tryggja áframhaldandi vaxtarmöguleika Icelandair“, segir Hilmar B. Baldursson, flugrekstrarstjóri Icelandair.

Yfir 100 nýir atvinnuflugmannsnemar hjá Keili frá áramótum

„Hér er um að ræða nýja leið að flugmannsstarfi, viðbótarleið við þær leiðir sem fyrir eru og hafa gefist vel, sem miðar að því stækka þann hóp sem vill leggja flugið fyrir sig“, segir Hilmar.

Samtals hafa um eitt hundrað nýnemar hafið atvinnuflugmannsnám í Keili það sem af er ársins og er samanlagður fjöldi atvinnuflugnema í skólanum vel yfir 200. Þá hafa hátt í sextíu umsóknir borist í næsta bekk atvinnuflugmannsnema sem hefst í janúar 2018 og verður námsárið því það lang fjölmennasta í Flugakademíunni frá upphafi.

26 nýnemar hófu í dag nám í atvinnuflugmannsnámi hjá Keili

Í ljósi fjölda umsókna mun umsóknarferli Flugakademíunnar breystast á næsta ári og þurfa þá umsóknir að hafa borist að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrir upphaf námsins. Samtvinnað og áfangaskipt atvinnuflugmannsnám hefst í janúar, maí og ágúst 2018.

Áhugasamir nemendur eru hvattir til að sækja um sem fyrst þar sem námskeiðin fyllast fljótt og eru umsóknir afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Nánari upplýsingar um flugnám hjá Keili má nálgast á www.flugakademia.is







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga