flugfréttir
Vilja að Siglufjarðarflugvöllur verði opnaður aftur
- Fjallabyggð mun senda umsókn til Samgöngustofu
Siglufjarðarflugvöllur séður frá Siglufjarðarvegi
Fjallabyggð hefur farið fram á að Siglufjarðarflugvöllur verði opnaður á ný en flugvellinum var lokað í júlí árið 2014 og var hann formlega afskráður í október um haustið.
Ákveðið var að loka Siglufjarðarflugvelli ásamt tveimur öðrum flugvöllum á landinu vegna
hagræðingar en Flugmálafélag Íslands mótmælti m.a. lokuninni.
Bæjarráðið í Fjallabyggð hefur samþykkt tillögu um að umsókn verði send til Samgöngustofu
þar sem farið verður fram á að flugvöllurinn verði skráður sem lendingarstaður.
Fram kemur að slíkt myndi styðja við framfarir í ferðaþjónustu á svæðinu en einnig er bent
á að hann þjóni einnig öryggishlutverki fyrir íbúa Siglufjarðar.
Á vefnum Hedinsfjordur.is kemur fram að endurbæturnar á flugstöðinni hafi verið gerðar í vor og voru í samræmi við samning ISAVIA við Framkvæmdasýslu ríkisins sem hefur leigt húsið undir vinnu við snjóflóðavarnir.
Flugturninn á Siglufjarðarflugvelli
Siglufjarðarflugvöllur hefur ICAO-kóðann BISI og hefur hann 3.556 feta langa flugbraut með stefnurnar 07 og 25.
Vonast er til að brautin verði opnuð á ný á næsta ári ef hægt verður að fá fjármagn til að lagfæra
yfirlag brautarinnar.
Afleiðing lokunarinnar hefur verið sú að áætlunarvélum er óheimilt að lenda á Siglufjarðarflugvelli auk þess sem tryggingar einkaflugvéla krefjast flestar að lent sé á skráðum völlum þar sem vissa er um ákveðinn aðbúnað þeirra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.