flugfréttir

Eric Schulz hjá Rolls-Royce verður sölustjóri Airbus

- Mun taka við af John Leahy

30. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:44

Eric Schulz hefur verið forstjóri yfir flugdeild Rolls-Royce

Eric Schulz, forstjóri yfir hreyfladeild Rolls-Royce, mun taka við af John Leahy sem sölustjóri yfir farþegaþotudeild Airbus.

Schulz mun taka við stöðunni þegar Leahy mun láta af störfum í lok janúar á næsta ári eftir 23 ár sem sölustjóri hjá Airbus.

„Við erum ánægðir yfir því að fá Eric Schulz yfir til okkar“, sagði Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus í skriflegri yfirlýsingu þar sem hann tekur fram að Schulz hafi umfangsmikla þekkingu í flugiðnaðinum og hreyflum og mikla kunnáttu á rekstri flugfélaga.

Með þessa hæfileika og þekkingu er talið að Eric Schulz verði góður staðgengill John Leahy sem oft er talinn vera einn besti sölumaður á flugvélum í iðnaðinum.

John Leahy mun hætta sem sölustjóri Airbus eftir áramót

Schulz byrjaði sinn feril árið 1986 er hann hóf störf hjá Aerospatiale-Sogerma en hann hefur meðal gengt yfirmannastöðu hjá fyrirtækjum á borð við UTA, Air France, Air Liberté, Goodrich, EADS og nú seinast hjá Rolls-Royce.

Schulz hefur meistaragráðu eftir að hann stundaði nám við vélaverkfræði í háskólanum í Genf auk þess sem hann lærði flugverkfræði við ESTA Engineering í París.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga