flugfréttir

Japan Airlines stefnir á tvöfaldan hljóðhraða

- Fjárfesta í bandaríska fyrirtækinu Boom Supersonic

5. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:32

Japan Airlines hefur fjárfest fyrir 1 milljarð króna í bandaríska fyrirtækinu Boom Supersonics

Japan Airlines stefnir á hljóðfrátt farþegaflug líkt og British Airways og Air France buðu upp á forðum daga en flugfélagið japanska tilkynnti nýlega að stefnt væri á að fjárfesta fyrir 1 milljarð króna í fyrirtækinu Boom Supersonic.

Boom Supersonic er sprotafyrirtæki í Denver í Colorado sem stofnað var af Blake School sem starfaði áður sem forritari hjá Amazon.com en frá árinu 2015 hefur fyrirtækið unnið af þróun á hljóðfrárri farþegaþotu sem mun geta náð tvöföldum hljóðhraða.

Boom Supersonic segir að fyrirtækið hafi unnið í samstarfi við Japan Airlines bakvið luktar dyr í rúmt ár að því að þróa þotu sem gæti náð hraðanum Mach 2.2 og flogið með 55 farþega.

Yoshiharu Ueki, forstjóri Japan Airlines, segir að það sé mikill heiður fyrir flugfélagið að vinna með Boom og sé stefnan að bjóða farþegum upp á að „spara tíma“ í ferðalögum sínum með því að stytta flugtímann en á sama tíma að viðhalda öryggi í flugi.

Líkan af XB-1 tilraunaflugvélinni sem mun fjúga fyrsta flugið á næsta ári

Blake School segir það stórt tækifæri að fá að vinna með Japan Airlines að hönnun á áreiðanlegri flugvél sem mun bjóða upp á byltingarkenndan flughraða fyrir farþega.

Boom Supersonic vinnur nú að því að smíða XB-1 sem verður tilraunaflugvél sem mun fljúga sitt fyrsta flug á næsta ári en von er á að fyrsta hljóðfráa farþegaþotuflugvélin verði tilbúin snemma á þriðja áratugnum.

Nánar má lesa um Blake School og fyrirtækið hans í frétt sem birtist á Alltumflug.is í mars árið 2016

Blake School, stofnandi Boom Supersonic







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga