flugfréttir
Tvö flugslys á Paine Field á innan við klukkustund
Cessna 172 Skyhawk vélin á Paine Field flugvellinum í Seattle í gær
Tvö flugslys áttu sér stað á inna við klukkustund í gær á Paine Field flugvellinum í Seattle en í bæði skiptin sluppu allir heilir á húfi.
Í fyrra skiptið, sem átti sér stað um þrjúleytið að staðartíma, var um að ræða Cessnu 172 Skyhawk
sem hlektist á með tvo um borð þegar flugmaðurinn var að æfa snertilendingar.
Vélin náði ekki að halda beinni stefnu á brautinni eftir lendingu auk þess sem flugmaðurinn átti
í erfiðleikum með að ná að klifra eftir snertilendinguna með þeim afleiðingum að vélin fór út af braut, í gegnum grindverk flugvallarins og endaði með nefið ofan í umferðargötu sunnan við flugvöllinn.
Tveir menn á þrítugsaldri voru um borð og slapp annar þeirra ómeiddur á meðan farþegi hans slapp með minniháttar meiðsl. Vélin varð fyrir töluverðum skemmdum bæði á skrúfu og á væng.
Nokkrum mínútum síðar, skömmu fyrir klukkan fjögur, hlekktist annarri flugvél
á í lendingu á sömu flugbraut eftir að nefhjól flugvélarinnar fór ekki niður fyrir lendingu en fram
kemur að um heimasmíðaða flugvél hafi verið að ræða.
Í bæði skiptin sluppu allir með skrekkinn án telkanlegra meiðsla
Aðrir fréttamiðlar greina hinsvegar frá því að flugmaðurinn hafi gleymt að setja hjólin niður fyrir lendingu en ekki kemur fram hverra gerðar sú vél var.
Flugmaður vélarinnar var sá eini sem var um borð og sakaði hann ekki. Vélin rann eftir flugbrautinni
og var hún fjarlægð skömmu eftir atvikið.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) segja að báðar vélarnar hafi verið í lendingu þegar atvikin
áttu sér stað og tengjast þau ekki á nokkurn hátt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.