flugfréttir
249.000 farþegar með Icelandair í nóvember
TF-ISJ, Boeing 757-200 þota Icelandair, í lendingu í Montréal
Alls voru 249.000 farþegar sem flugu með Icelandair í nóvembermánuði sem leið sem er 8 prósenta aukning samanborðið við nóvember í fyrra.
Fjöldi þeirra sem flugu með félaginu í nóvember var 249.099 farþegar en í nóvember 2016
flugu 229.903 farþegar með Icelandair.
Framboðsaukning á milli ára nam 11% og var sætanýtingin 78,1 prósent en í fyrra
mældist sætanýtingin 79,1 prósent.
Farþegar með Air Iceland Connect í nóvember voru 26.507 talsins sem er ellefu prósent
fleiri en á sama tíma í fyrra þegar 23.819 farþegar flugu með félaginu.
Frá áramótum hafa 3.8 milljónir farþega flogið með Icelandair en frá áramótum 2016
fram til nóvember í fyrra höfðu 3.4 milljónir flogið með félaginu.
325.996 farþegar hafa flogið með Air Iceland Connect frá áramótum til enda nóvember á þessu ári sem er 6% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 306.824 höfðu flogið með félaginu þá.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.