flugfréttir

Lofthæfisskírteini fölsuð við sölu á notuðum flugvélum í Noregi

- Norsk flugmálayfirvöld vara kaupendur við og hvetja þá að vera á varðbergi

29. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:45

Árið 2017 komu upp tvö tilvik í Noregi þar sem seljandi falsaði skilríki um lofthæfi á flugvél sem verið var að selja til nýs eiganda

Upp hefur komist um nokkur tilvik í Noregi þar sem lofthæfi flugvéla hafa verið fölsuð við sölu á litlum einkaflugvélum og hafa flugmálayfirvöld í Noregi hafa sent út viðvörun í kjölfar þessa.

Flugmálayfirvöld hvetja kaupendur á flugvélum að ganga sérstaklega úr skugga um að viðkomandi loftfar sé skráð lofthæft samkvæmt yfirvöldum séu pappírar sem sýna fram á það áður en farið er út í að ganga frá kaupunum.

„Það er auðvelt að trúa því að flugvél sé lofthæf sé skráning sem sýnir fram á slíkt en á meðan getur verið að svo sé hinsvegar ekki“, segir Morten Larsen, yfirmaður hjá skráningardeild hjá norskum flugmálayfirvöldum.

Árið 2017 komu upp tvö tilvik í Noregi þar sem seljandi falsaði skilríki um lofthæfi á flugvél sem verið var að selja til nýs eiganda en flugvélarnar voru auglýstar til sölu á Netinu.

Kaupendur, sem höfðu samband við flugmálayfirvöld, komust síðar af því að fylgiskjöl og pappírar með lofthæfi vélanna voru fölsuð.

Larsen segir að falsanirnar hafi ekki verið fagmannlega gerðar og aðeins hefði verið átt við upplýsingar á borð við dagsetningar en hann telur ástæðu til þess að kaupendur séu á varðbergi fyrir röngum heimildum í skjölum í tengslum við flugvélakaup.

Larsen ber saman kaupin við kaup á notuðum bíl eða fasteign þar sem venjan er að vera var um sig að láta ekki plata sig en hann telur vandamálið liggja í því að sumir seljendur séu að reyna að fá eins mikið fyrir flugvélarnar og hægt er.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga