flugfréttir
Philippine Airlines mun hætta með Airbus A340 árið 2021
Airbus A340-300 þota Philippine Airlines
Farþegaflug með fjögurra hreyfla þotum á vegum Philippine Airlines mun taka enda árið 2021 en þá stefnir félagið á að hætta með Airbus A340 þoturnar.
Philippine Airlines hefur í dag sex Airbus A340-300 þotur í flotanum en þær elstu eru að verða
18 ára gamlar.
Vélunum verður skipt út fyrir nýjum Airbus A350-900 þotum en sú fyrsta verður afhent félaginu í
júní í sumar.
Til stóð að allar Airbus A340 þoturnar sex myndu fara úr flotanum á þessu ári en Jaime Bautista,
framkvæmdarstjóri Philippine Airlines, segir að vonandi verði sú síðasta farin úr flotanum
fyrir árið 2021.
Félagið á svo von á þremur nýju Airbus A350 þotum í september, október og í nóvember á þessu ári
og svo munu tvær seinustu fylgja í kjölfarið í mars og í júní árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.