flugfréttir

Flugslysið í Íran: Flak ATR flugvélarinnar fundið

- Enginn komst lífs af þeim 65 sem voru um borð

20. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:12

Þyrla við leit í Dena-fjöllum í dag

Flak írönsku ATR farþegaflugvélarinnar frá Iran Aseman Airlines, sem fórst í innanlandsflugi í Íran, er fundið, tveimur dögum eftir að vélin fórst sl. sunnudag.

Flak vélarinnar fannst í morgun í hlíðum Dena-fjallsins í um 25 kílómetra fjarlægð frá borginni Yasuj sem var áfangastaður vélarinnar en vélin fór í loftið frá Teheran en hvarf af ratsjá 45 mínútum síðar.

Talið er að flugvélin hafi flogið í fjallhlíðina í mjög slæmu skyggni en flugmenn vélarinnar voru nýbúnir að fá leyfi til þess að lækka flugið úr 21.000 fetum niður í 17.000 fet en vélin hvarf af radar skömmu síðar.

Slæmt veður, þoka og snjókoma, hefur hamlað björgunaraðgerðir í tvo daga en í gær fór að létta til og fór hópur 100 fjallgöngumanna upp í fjöllinn fótgangandi auk þess sem þyrlur voru sendar til leitar en þá hefur einnig verið notast við snjósleða til leitar auk dróna sem hafa tekið yfir 500 myndir af svæðinu.

Flak vélarinnar fannst í morgun í fjallshlíð í 12.000 feta hæð yfir sjávarmáli

Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur sent þrjá sérfræðinga til Írans en ATR flugvélarnar eru smíðaðar í Toulouse í Frakklandi og var vélin sem fórst framleidd árið 1993.

Slysið hefur aftur vakið upp spurningar varðandi flugöryggi í Íran sem hefur mátt sæta viðskiptabanni frá vestrænum löndum frá árinu 1979 en írönsk flugfélög hafa verið á bannlista í Evrópu frá því í desember árið 2016.

Um borð í vélinni sem fórst á sunnudag voru 59 farþega og sex manna áhöfn og komst enginn lífs.

Myndir:













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga