flugfréttir
Líktu eftir sömu aðstæðum í flughermi
- Náðu að lenda vélinni við sömu aðstæður í hermi
Enginn af þeim 65 sem voru um borð í vélinni komust lífs af
Orsök flugslyssins í Rússlandi, er farþegaþota af gerðinni Antonov An-148 frá Saratov Airlines fórst skömmu eftir flugtak frá Moskvu þann 11. febrúar, er enn ókunn en talið er mögulegt að ísing í stemmuröri hafi átt stóran hlut að máli.
Í fyrstu bendir til að hraðamælar vélarinnar hafi sýnt óáreiðanlegan flughraða vegna ísingar í stömmuröri („pitot tubes“)
og er talið að flugmennirnir hafi handflogið vélinni er þeir lækkuðu flugið úr 5.900 fetum en vélin
fórst skömmu síðar á akri.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Rússlandi hefur látið tvo reynda flugmenn frá Antonov, sem fljúga sömu þotutegund, líkja
eftir aðstæðum í flughermi í St. Pétursborg til að gera sér grein fyrir orsök slyssins með tilliti til þeirra upplýsinga
sem sérfræðingar hafa undir höndum úr flugrita vélarinnar.
Flugmennirnir, sem líktu eftir fluginu í flugherminum, framkvæmdu sömu bilanir í samræmi við handbók flugvélarinnar við
sömu skilyrði og tókst þeim að lenda vélinni giftusamlega.
Rannsóknarnefnd flugslysa segir að nú sé verið að rannsaka hvers vegna flugmönnunum tókst hinsvegar ekki að lenda
vélinni við sömu aðstæður.
Þá eru rússnesk flugmálayfirvöld einnig að hefja sambærilega tilraun í flughermi með sömu forsendur í þeim tilgangi
að vita hvort þörf sé á að koma fram með tilmæli um breytingar á verklagsreglum meðal flugmanna í sambærilegum
aðstæðum.
Verið er að fara yfir hljóðupptökur úr hljóðrita vélarinnar og hefur verið staðfest að samtöl
flugmannanna komi heim og saman við upplýsingar úr flugritanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.