flugfréttir
Finnair undirbýr pöntun í allt að þrjátíu þotur
Airbus A350-900 þota Finnair
Finnair vinnur nú að því að undirbúa pöntun í nýjar meðalstórar farþegaþotur með einum gangi og koma allt að 30 þotur til greina.
Verið er að meta þörf félagsins með tilliti til eftirspurnar út frá farþegaspá en að því loknu hefjast viðræður
við flugvélaframleiðendur.
Ekki kemur fram hvort Boeing eða Airbus komi til greina en sterkar líkur eru á að félagið muni panta þotur
frá Airbus þar sem félagið hefur í dag nær eingöngu Airbus-vélar í flotanum fyrir utan Embraer-þotur og flugvélar
frá ATR.
Finnair þarf að minnsta kosti 20 flugvélar til að leysa eldri vélar af hólmi og umfram það væri um stækkun
flugflota að ræða.
Þær þotur sem Finnair er að fá afhentar í dag eru Airbus A350-900 vélarnar en félagið hefur fengið ellefu afhentar og á eftir
að fá átta til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.