flugfréttir

ATR-flugfloti SAS flaug ekki í heilan dag vegna ísingar

13. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:50

ATR 72-600 flugvél SAS

Fimm flugvélar af gerðinni ATR 72-600 í flota SAS voru kyrrsettar tímabundið sl. helgi og gátu ekki flogið áætlunarflug allan laugardaginn vegna ísingar.

Vetrarhörkur og miklir kuldar í Skandinavíu sl. vikur hafa gert flugfélögum á Norðurlöndum erfitt fyrir en ATR vélarnar fimm, sem eru starfræktar af breska flugfélaginu Flybe, sátu á jörðinni allan laugardaginn vegna „óeðlilegs veðurs“.

SAS tilkynnti á laugardag að öllu flugi til og frá Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi með ATR skrúfuvélunum hefði verið aflýst vegna frostrigningar en það hafði áhrif á flug til Visby og til Turku í Finnlandi.

Flybe sagðist ekki getað útskýrt hversvegna ATR vélarnar gætu ekki flogið þennan daginn á meðan allar aðrar flugvélar voru á áætlun.

SAS útskýrði hinsvegar í tilkynningu að flugvélar hefðu mismunandi eiginleika og takmörk er kæmur að veðri og hefðu veðurskilyrðin þennan daginn farið yfir þau mörk sem flugfélagið setur er kemur að flugrekstri fyrir ATR flugvélarnar.

ATR flugvélarnar hafa hinsvegar verið þekkar fyrir að vera viðkvæmari fyrir ísingu samanborið við aðrar flugvélategundir þar sem ísing getur myndast á þeim á mjög skömmum tíma við slíkar aðstæður.

Flybe hefur fimm ATR 72-600 flugvélar sem allar eru starfræktar fyrir hönd SAS.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga