flugfréttir

Bjarni geimfari með fyrirlestur í HR á morgun

- Mun segja frá ævintýrum sínum, geimferðum, vísindum og flugi

13. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:06

Bjarni V. Tryggvason mun halda fyrirlestur á morgun klukkan 12:00 í Háskólanum í Reykjavík (Stofa V101)

Bjarni V. Tryggvason, verkfræðingur og fyrsti Íslendingurinn til að fara út í geiminn, mun halda fyrirlestur á morgun í Háskóla Reykjavíkur.

Yfirskrift fyrirlestursins er „Ævintýri lífs míns: Verkfræði og flug“ og mun Bjarni spjalla um geimflug, flugvélaprófanir og rannsóknir og þróun á sviði verkfræði auk þess sem hann mun stikla á stóru um þau ævintýri sem á daga hans hefur drifið.

Bjarni fæddist á Íslandi árið 1945 en fluttist árið 1953 til Kanada þar sem hann hefur búið síðan. Hann hefur dvalið á Íslandi undanfarnar vikur og unnið með ISAVIA að þróun á flugvélaprófunum á Keflavíkurflugvelli. 

Bjarni var fyrsti Íslendingurinn til þess að fara út í geim

Bjarni er með B.Ap. Sc gráðu í verkfræði og eðlisfræði frá Háskólanum í British Columbia og heiðursdoktorsgráðu frá fjölmörgum háskólum en árið 1997 flaug hann í 10 daga með bandarísku geimskutlunni og árin 1998-2000 lauk hann þjálfun hjá NASA og alþjóðlegu geimstöðinni.

Hann hefur þróað hugbúnað sem notaður hefur verið í rússnesku MIR geimstöðinni, bandarísku geimskutlunni og alþjóðlegum geimstöðinni (ISS) og þá hefur hann hefur gegnt stöðum og kennt loftaflsfræði, stærðfræði og hönnun kerfa fyrir geimferðir í fjölmörgum háskólum.

Bjarni hefur mikla reynslu sem flugmaður, m.a. sem listflugmaður og á yfir 6300 flugtíma að baki á yfir 50 flugvélategundum. Frá 2009-2017 kenndi hann við alþjóðlegan kanadískan flugskóla fyrir prófunarflugmenn (ITPS Canada). 

Fyrirlesturinn mun hefjast á morgun (14. mars) klukkan 12:00 í stofu V101 í Háksólanum í Reykjavík. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og eru allir velkomnir.

Fleiri myndir af Bjarna:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga