flugfréttir
Iran Air vill ráða kvenkyns flugmenn í fyrsta sinn
Margar konur eru flugmenn hjá flugfélögum í Íran en ekki hjá ríkisflugfélaginu Iran Air
Iran Air ætlar sér í fyrsta sinn að ráða kvenkyns flugmenn til starfa hjá félaginu en í 57 ára sögu félagsins hafa aðeins karlmenn flogið flugvélum félagsins.
Iran Air leitar nú að nýjum flugmönnum og kemur fram í atvinnuauglýsingu frá félaginu
að konur séu sérstaklega hvattar til þess að sækja um.
Það var Farzaneh Sahrafbafi, framkvæmdarstjóri Iran Air, sem tilkynnti þetta á blaðamannafundi
sl. sunnudag en hún tók við stöðu framkvæmdarstjóra félagsins í fyrra.
Fimm stærstu stjórnarmeðlimir Iran Air eru í dag konur og hefur hún að undanförnu unnið að
því að fá kvenkyns flugmenn til starfa hjá félaginu.
Konur hafa í mörg ár flogið með öðrum flugfélögum í Íran en aldrei áður hjá ríkisflugfélaginu.
Fram kemur að hæfir umsækjendur muni gangast undir þjálfun í sex til átta mánuði en verið
er að leita að framtíðarflugmönnum á þær 109 farþegaþotur sem félagið hefur pantað frá Airbus en í dag
telur flugflotinn 39 flugvélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.