flugfréttir
Þúsundasta flugvélin skráð á eyjunni Mön
Níuhundraðasta flugvélin til að vera skráð á eyjunni Mön var M-VANG árið 2016
Þúsundasta flugvélin var á dögunum skráð á eyjunni Mön en aðeins eru 11 ár síðan að stjórn eyjunnar byrjaði að taka á mótu flugvélaskráningum.
Flugvélar, sem eru skráðar á Mön, bera forskeytið „M“ og eru því ekki hluti að bresku
flugvélaskráningunni „G“.
Það var árið 2007 sem löggjafarþingið á Mön ákvað að vera hluti af flugiðnaðinum í þeim tilgangi
að laða að fyrirtæki í fluginu til eyjunnar og gera Mön að miðstöð flugþjónustu og fyrirtækja
í flugtengdum iðnaði.
Stofnuð var flugvélaskrá sem kallast IOMAR sem stendur fyrir „The Isle of Man Aircraft Registry“
og hafa eigendur einkaflugvéla og flugrekstraraðilar með einkaþotur geta skráð loftför sín
á eyjunni.
M-JSWB á flugvellinum í Long Beach í Kaliforníu
Í dag eru 440 flugvélar skráðar á eyjunni Mön en þúsundasta flugvélin frá upphafi sem skráð var
á eyjunni var Gulfstream G650ER einkaþota sem ber núna skráninguna M-JSWB.
Flestar þessara 440 loftfara eru einkaþotur og þyrlur en um tólf farþegaþotur hafa tímabundna
skráningu á eyjunni þar sem þær eru á milli leigusamninga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.