flugfréttir
Fimmta Dreamliner-þotan sem smíðuð var fer í niðurrif
- Ein af þeim Boeing 787 þotum sem voru of þungar
Fimmta Dreamliner-þotan sem smíðuð var, N787FT, rifin niður á Paine Field
Boeing hefur hafið niðurrif á einni af þeim fyrstu Dreamliner-þotum sem smíðaðar voru en um er að ræða fimmtu Boeing 787-8 tilraunarþotuna sem smíðuð var.
Þotan er ein af þeim sex tilraunarþotum sem smíðaðar voru og jafnframt ein af þeim Boeing 787 þotum sem voru „of þungar“ en útséð var um að hún yrði seld. Þar af leiðandi var ákveðið
að fá verktaka til þess að rífa vélina á Paine Field flugvellinum í Seattle.
Ákveðið var að nota niðurrifið sem þjálfun í þeirri aðferð sem notuð er þegar flugvél er rifin í sundur fyrir
varahluti.
Boeing náði hægt og rólega að selja um tólf Dreamliner-þotur sem voru of þungar og voru þær þar af leiðandi seldar með veglegum afslætti.
Boeing sá strax fram á árið 2009 að ekki væri hægt að selja fyrstu sex Dreamliner-þoturnar þar sem þær
gengust undir það miklar endurbætur vegna mistaka við enduruppsetningu á íhlutum frá birgjum sem gerðu vélarnar
allt of þungar.
Ekkert flugfélag vildi kaupa þær en á endanum náðist að selja nokkrar af þotunum til Korean Air, Air Austral, Ethiopian
Airlines auk fleiri flugfélaga.
Þrjár fyrstu Dreamliner-þoturnar enduðu sem safngripir og fór fyrsta eintakið af Boeing 787-8 til Chubu Centrair International
flugvallarins í Nagoya, önnur Dreamliner-þotan fór á Pime Air and Space safnið í Tucson í Arizona og sú þriðja
á Museum of Flight safnið í Seattle.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.