flugfréttir
Primera Air opnar bækistöð í Birmingham
- Hefja flug yfir Atlantshafið til Ameríku í vikunni
Primera mun auka umsvif sín umtalsvert á þessu ári á flugvellinum í Birmingham
Primera Air hefur opnað bækistöðvar í Birmingham og gert flugvöllinn að einni af starfstöðvum félagsins með flugi þaðan til Malaga og Palma de Mallorca.
Um helgina mun félagið því næst hefja flug frá Birmingham til Bandaríkjanna með flugi til Newark-flugvallarins
í New Jersey sem hefst þann 18. maí og því næst mun Toronto bætast við síðar í júní.
Flugfélagið mun auka umsvif sín enn frekar á þessu ári á flugvellinum í Birmingham því til stendur einnig að hefja
flug til Alicante, Barcelona, Gran Canaria, Tenerife og Chania.
Þá mun Primera Air hefja flug til Keflavíkur frá Birmingham frá og með 9. desember í vetur og verður flogið fram
í mars árið 2019.
Primera Air tók í apríl á móti fyrstu Airbus A321neo þotunni af þeim sex sem pantaðar voru en þá á félagið einnig
von á tveimur Airbus A321LR þotum og tíu þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 9.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.