flugfréttir
Saratov Airlines á leið í gjaldþrot
Antonov An-148 þota Saratov Airlines
Rússneska flugfélagið Saratov Airlines mun að öllum líkindum leggja árar í bát og hætta starfsemi en flugfélagið hefur ekki náð sér á strik í kjölfar flugslyss er Antonov An-148 þota félagsins fórst skömmu eftir flugtak í Moskvu í febrúar á þessu ári.
Rússnesk flugmálayfirvöld hafa þegar krafið félagið um að hætta sölu á farmiðum frá og með 30. maí og
loka einnig fyrir bókanir í gegnum ferðaskrifstofur.
Félagið hefur sagt að stjórn Saratov Airlines hafi ákveðið að hætta starfseminni í enda mánaðarins og verður
starfsmönnum sagt upp.
Ákvörðun rússneskra flugmálayfirvalda kemur í kjölfar skoðunar á starfsemi flugfélagsins í kjölfar flugslyssins
og höfðu stjórnvöld þegar takmarkað starfsemi Saratov Airlines.
Saratov Airlines hefur einnig átt í erfiðleikum með að halda úti flugáætlun eftir að flugmálayfirvöld
kyrrsettu allar Antonov An-148 þoturnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.