flugfréttir

Air India losar sig við A320 þotur með tvöföldum hjólum

22. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:41

Ein af þeim Airbus A320 þotum Air India sem hafa tvöfalt fleiri hjól á aðalhjólastelli

Air India mun hætta með þær Airbus A320 þotur sem koma með tvöföldum hjólum á aðalhjólastelli en flugfélagið indverska fékk vélarnar yfir í sinn flugflota við yfirtökuna á Indian Airlines árið 2011.

„Flestar þessara flugvéla eru notaðar sem varaflugvélar og eru tiltækar þegar þarf á þeim að halda og hafa þær flogið að meðaltali um eina eða tvær flugferðir á dag“, segir aðili innan Air India.

Fram kemur að Air India hafi þrjár Airbus A320 þotur í flotanum sem hafa fjögur hjól á hvoru aðalhjólastelli í stað tveggja eins og aðrar Airbus A320 þotur og hafa þær því samtals 10 hjól á meðan A320 hefur sex hjól.

Ástæðan fyrir því að Airbus A320 þoturnar voru afhentar með tvöföldum hjólum var sú að Indian Airlines flaug til margra flugvalla sem voru á sínum tíma ekki með nægilega sterkt yfirlag á flugbrautum og á akbrautum.

Á tíunda áratugnum bauð Airbus Indian Airlines upp á þann kost að útfæra A320 þoturnar með fleiri hjól til að dreifa þyngdinni og létta á álagið undan hjólabúnaðinum en vélarnar þrjár sem Air India hefur eftir í flotanum voru afhentar árið 1993 og árið 1994 en fara úr flotanum fyrir lok þessa árs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga