flugfréttir
Hefja sjóflug milli Seattle og Vancouver
Sjóflugvél Kenmore Air
Kenmore Air hefur hafið áætlunarflug með sjóflugvélum milli Seattle og Vancouver sem býður upp á beinar tengingar milli miðbæjarkjarna borganna tveggja.
Flugfélagið mun fljúga 10 sinnum í viku á milli Seattle og Vancouver með sjóflugvélum af gerðinni
DHC-3 Turbo Otter og verður flogið í samstarfi við kanadíska flugfélagið Harbour Air Seaplanes.
Vancouver verður önnur borgin sem Kenmore Air mun fljúga til með sjóflugvélum til miðborga
en félagið flýgur nú þegar sambærilegt áætlunarflug til Victoria.
Kenmore Air er yfir 70 ára gamalt flugfélag sem hefur flogið farþegum með litlum, eins hreyfils flugvélum, milli staða um norðvesturhluta vesturstrandar Bandaríkjanna frá árinu 1946 en félagið býður einnig upp á útsýnisflug og leiguflug.
Margir aðilar sem og viðskiptamenn hafa beðið eftir beinu flugi milli miðborga Vancouver og Seattle svo hægt sé að ferðast með skjótum hætti milli miðkjarna þeirra án þess að fara um stóru alþjóðaflugvellina sem lengir ferðatímann enn frekar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.