flugfréttir

Airbus kynnir innréttingu fyrir A350 einkaþotuútgáfuna

29. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:57

Móttökurýmið í einkaþotuútgáfunni af Airbus A350 þotunni

Airbus Corporate Jets (ACJ), dótturfélag Airbus, hefur hannað sérútbúið farþegarými fyrir einkaþotuútgáfu af Airbus A350 þotunni.

Hugmyndin, sem kallast Harmony og er hönnuð í anda sjötta áratugarins, verður í boði fyrir einkaaðila, ríkisstjórnir eða þau fyrirtæki sem vilja panta Airbus A350 sem einkaþotu en innréttingin mun einnig verða í boði fyrir einkaþotuútgáfu af Airbus A330neo þotunni.

Hönnunin gerir ráð fyrir að gestir koma inn í bogalaga móttökurými með hólógrafískum hnetti sem sýnir staðsetningu flugvélarinnar á jörðunni hverju sinni.

Þegar gengið er til vinstri er farið inn í svefnherbergi þar sem einnig má finna skrifstofu og baðherbergi en sé gengið til hægri er farið inn í þægindrými með setustofu, bar, fundaraðstöðu, og billjard-borði en einnig má útfæra rýmið með mismunandi hætti.

Hönnunin, sem nefnist Harmony, var hönnuð af Airbus Corporate Jets (ACJ)

Airbus segir að Airbus A350 einkaþota með Harmony-innréttingunni veitir viðskiptavinum sínum möguleika á að ferða með miklum þægindum hvert sem er í heiminum í beinu flugi en þar sem einkaþotuútgáfa af A350 er mun léttari en farþegaútgáfan þá eykst flugdrægi vélanna til muna svo þær geta tengst saman nánast hvaða tvo staði sem er á jörðunni.

Airbus Corporate Jets hefur í dag um 500 viðskiptavini sem hafa pantað einkaþotuútgáfu af þeim flugvélum sem Airbus framleiðir en enn sem komið er hefur enginn pantað einkaþotuútgáfu af Airbus A350 þotunni.

Fleiri myndir:













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga