flugfréttir

Fyrsta Boeing 777 þotan sem smíðuð var tekin úr umferð

- Hefur verið hjá Cathay Pacific í 18 ár

10. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:56

B-HNL er 24 ára gömul, smíðuð árið 1994

Fyrsta Boeing 777 þotan sem smíðuð var á sínum tíma hefur verið tekin úr umferð og færð í geymslu.

Þotan, sem er af gerðinni Boeing 777-200, var smíðuð árið 1994 og var hún tilraunarþota hjá Boeing í sex ár en fór því næst í flota Cathay Pacific.

Þotan fékk skráninguna B-HNL og hefur hún verið í notkun hjá flugfélaginu kínverska í 18 ár en þann 1. júní sl. flaug þotan sitt síðasta áætlunarflug frá Hong Kong til Xiamen í Kína.

Þotan verður á næstunni færð á Museum of Flight flugsafnið í Everett þar sem nú þegar eru til sýnis fyrstu eintökin af Boeing 727, 737 auk fyrstu júmbó-þotunnar, Boeing 747-100.

B-HNL var ekki fyrsta Boeing 777 þotan sem afhent var en það var United Airlines sem tók við fyrsta eintakinu árið 1995.

Á tíunda áratugnum var Cathay Pacific eitt af þeim átta flugfélögum sem fengu afhentar fyrstu Boeing 777 þoturnar en flugfélagið fékk fyrstu Boeing 777-300 þotuna í flotann árið 1998.

Cathay Pacific hefur í dag 69 Boeing 777 þotur af gerðinni Boeing 777-200, -300 og Boeing 777-300ER.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga