flugfréttir

Ráðherra segir af sér rétt fyrir kosningu um stækkun Heathrow

- Breska ríkisstjórnin mun kjósa um þriðju flugbrautina eftir helgi

21. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:45

Greg Hands, viðskiptaráðherra Bretlands, sagði af sér í morgun

Greg Hands, viðskiptaráðherra Bretlands, hefur sagt af sér vegna óánægju sinnar vegna ákvörðunar breska þingsins um að taka upp atkvæðagreiðslu eftir helgi um stækkun Heathrow-flugvallar.

Ríkisstjórn Bretlands mun næstkomandi mánudag greiða atkvæði um þriðju flugbrautina á Heathrow en Hands hefur lengi verið mikill flugvallarandstæðingur og er alfarið á móti þriðju flugbrautinni.

Hands gerði grein fyrir uppsögn sinni á Twitter þar sem hann segir að hann ætli að yfirgefa stólinn og óskar hann öllum öðrum þingmönnum og ráðherrum góðs gengis.

Í mörg ár hefur verið mikið deilumál hver besta lausnin sé við flugvallarvandanum á suðurhluta Englands en breska hagkerfið hefur farið á mis við gríðarlega fjármuni þar sem Heathrow-flugvöllur getur ekki tekið við meiri flugumferð og biðlista er eftir plássum á flugvellinum.

Heathrow-flugvöllur kostar breskt efnahagslíf um 2.800 milljarða króna á ári vegna plássleysis sem aftrar flugvellinum frá því að geta stækkað og tekið á móti þeirri eftirspurn sem er eftir flugi til og frá London.

Gert er ráð fyrir að þriðja flugbrautin muni liggja norður af flugvallarsvæðinu

Mjög skiptar skoðanir hafa verið meðal bresku flokkanna og hefur þingið verið klofið þegar rætt hefur verið um flugvallarmál Breta og hefur lítið breyst í þeim efnum eftir að leyfi var gefið fyrir þriðju flugbrautinni á Heathrow.

Þrátt fyrir leyfið þá hefur þingið ekki náð að koma sér saman um hvort að gefa eigi formlega grænt ljós fyrir framkvæmdnunum en á meðan hefur stjórn Heathrow-flugvallarins verið að safna saman fjárfestum til að koma með fjármagn inn í framkvæmdirnar.

Mikil pressa hefur verið á ríkisstjórnina til að afgreiða málið og þá sérstaklega af hálfu viðskiptalífsins og fjárfesta en ekki eru allir sammála um að stækkunin með þriðju flugbrautinni sé rétta lausnin við flugvallarvandanum.

Til að mynda hefur Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna, hótað því að höfða mál gegn flugvellinum ef niðurstaða kosningarinnar verður sú að breska þingið kýs með þriðju flugbrautinni.

„Ég mun gera allt sem í mínu valdi sttendur til að koma í veg fyrir þessar áætlanir“, segir Khan - „Á meðan ég trúi á betri Heathrow-flugvöll þá trúi ég ekki því að stærri Heathrow-flugvöllur sé rétta lausnin fyrir London“.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga