flugfréttir

JetBlue pantar allt að 120 eintök af Airbus A220 (CS300)

- Mikill skellur fyrir Embraer

11. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:29

Tölvugerð mynd af Airbus A220 (CS300) í litum JetBlue

JetBlue hefur lagt inn pöntun til Airbus í allt að 120 eintök af Airbus A220-300 þotunni sem er nýtt nafn á CSeries CS300 þotunni frá Bombardier.

Tilkynnt var um kaupin aðeins nokkrum klukkutímum eftir að CS300 þotan fékk nýtt nafn í gær í kjölfar yfirtöku Airbus á framleiðslunni á CSeries.

Pöntunin samanstendur af staðfestri pöntun í 60 þotur sem verða afhentar frá og með árinu 2020 en jetBlue hefur einnig tryggt sér kauprétt á 60 þotum til viðbótar frá og með árinu 2025.

Allar Airbus A220 þoturnar sextíu, sem jetBlue mun fá afhentar, verða framleiddar í nýrri verksmiðju í Mobile í Alabama sem eiga eftir að rísa en framkvæmdir vegna þeirra munu hefjast innan tíðar.

Þoturnar sextíu ætlar jetBlue að nota m.a. til þess að leysa af hólmi eldri vélar af gerðinni Embraer E190 en þá hefur félagið einnig ákveðið að uppfæra pöntun í 25 Airbus A320neo þotur upp í stærri útgáfuna, A321neo.

Airbus kynnti í gær A220 formlega til leiks

Val jetBlue, um að panta CS300 þotuna, er stór skellur fyrir Embraer sem hefur reynt að selja jetBlue nýju E2-kynslóðina af Embraer-þotunni.

„Þrátt fyrir að Embraer E190 hefur þjónað lykilhlutverki í rekstri jetBlue frá árinu 2005 þá var niðurstaða okkar sú að Airbus A220 er hagkvæmari kostur“, segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Fram kemur að Airbus A220 (CS300) sé allt að 40% hagkvæmari í rekstri en þær Embraer E190 þotur sem jetBlue hefur í dag en þær munu byrja að hverfa úr flotanum eftir tvö ár á sama tíma og félagið byrjar að taka við fyrstu A220 vélunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga