flugfréttir

Kvenmenn í Sádí-Arabíu geta núna sótt um flugnám

- Fyrsti flugskólinn í landinu til þess að taka við umsóknum frá konum

17. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:16

Dalia Yashar var meðal þeirra fyrstu til þess að skrá sig í flugnám hjá Oxford Aviation Academy

Flugskóli einn í Sádí-Arabíu ætlar að verða sá fyrsti þar í landi til þess að leyfa kvenmönnum að hefja flugnám.

Breski flugskólinn Oxford Aviation Academy hefur opnað nýtt útibú í Sádí-Arabíu og mun hann taka við umsóknum frá konum sem stefna á að verða atvinnuflugmenn.

Sú ákvörðun var tekin þar sem stjórnvöld í landinu hafa létt á reglugerðum sem hafa hingað til bannað konum ýmsar daglegar athafnir á borð við að aka bifreiðum.

Oxford Aviation Academy opnaði nýlega flugskóla í borginni Dammam og hefur skólinn nú þegar fengið umsóknir frá hundruðum kvenna sem stefna á flugnám en áður fyrr hafa þær þurft að ferðast erlendis til að komast í flugnám þar sem það hefur aðeins verið í boði fyrir karlmenn í Sádí-Arabíu.

Fyrsti atvinnuflugmannsbekkurinn, þar sem kvenmenn verða meðal nemenda, fer af stað í september

„Sá tími er liðinn þar sem sem konur hafa aðeins fengið að vinna í takmörkuðum störfum“, segir Dalia Yashar, sem var meðal þeirra fyrstu til þess að skrá sig í flugnám.

Oxford Aviation Academy flugskólinn í Sádí-Arabíu er staðsettur á King Fahd International flugvellinum en einnig verður boðið upp á nám í flugvirkjum við skólann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga