flugfréttir
Fjölgun breiðþotna til Nepal veldur skemmdum á flugbraut
- Biðja flugfélög um að fljúga minni flugvélum til flugvallarins ef hægt er
Frá Tribhuvan-flugvellinum í Kathmandu í Nepal
Flugmálayfirvöld í Nepal hafa töluverðar áhyggjur af skemmdum sem farnar eru að myndast í yfirlagi á flugbrautinni á Tribhuvan-flugvellinum í Kathmandu vegna mikillar aukningar á breiðþotum sem fljúga til vallarins.
Þau flugfélög, sem fljúga til Kathmandu, eru hvött til þess að fækka flugferðum með breiðþotum til Nepal og er
farið fram á að þau noti smærri flugvélar ef möguleiki er á.
„Við höfum óskað eftir því að erlend flugfélög fljúgi hingað með minni þotum sem koma með einum gangi þangað
til að yfirlag brautarinnar hefur gengist undir endurnýjun“, segir Murari Bhandari hjá stjórn flugvallarins.
Um 30 erlend flugfélög fljúga reglulega til Kathmandu og eiga sér stað um 90 flugtök og lendingar á hverjum degi
á Tribhuvan-flugvellinum en meðal stærstu flugvélanna sem fljúga um völlinn eru þotur af gerðinni Boeing 777 og
Airbus A330.
Aukið breiðþotuflug um völlinn hefur aukið álagið á flugbrautinni þar sem meiri þrýstingur kemur á yfirlagið hverju
sinni sem hefur orsakað að sprungur hafa myndast sem stækka og enda sem skemmdir.
Meðal flugfélag sem fljúga breiðþotum til Kathmandu er Korean Air sem notar Boeing 777-200 þotur til flugsins auk
Thai Airways sem einnig flýgur til Nepal með Boeing 777 og þá notar Turkish Airlines Airbus A330-300 til flugsins.
Skemmdir á akbrautinni á flugvellinum í Kathmandu
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.