flugfréttir
MH370: Vill að kenning um laumufarþega verði rannsökuð
- Stjórnvöld hafa ekki sýnt kenningunni áhuga
Philip Baum segir að stjórnvöld hafi ekki viljað rannsaka hvort að laumufarþegi hafi verið um borð í flugi MH370
Philp Baum, sérfræðingur í flugöryggi og ritstjóri Aviation Security International, hvetur yfirvöld til þess að rannsaka þann möguleika að laumufarþegi gæti hafa verið um borð í malasísku farþegaþotunni, flugi MH370, sem hvarf þann 8. mars árið 2014.
Baum segir að svo virðist sem að enginn hafi haft áhuga á því að rannsaka hvort að einhver gæti hafa verið um borð í malasísku farþegaþotunni sem var ekki á farþegalisti og segir hann líkur á því að óviðkomandi aðili gæti hafa m.a. falið sig í rafkerfisrými vélarinnar sem á ensku nefnist E/E („electronics and engineering bay“.
Philp Baum, sérfræðingur í flugöryggi
Hægt er að komast niður í rafkerfisrýmið bæði innan frá í gegnum hlera sem opnaður er í gólfinu fremst á Boeing 777 og mörgum
farþegaþotum en einnig er hægt að komast inn í hann að utanverðu.
Baum kom fyrst með kenninguna um laumufarþega um borð í flugi MH370 nokkrum dögum eftir að þotan hvarf og segir
hann að mögulegt að laumufarþegi hefði getað átt stóran hlut að hvarfi vélarinnar.
„Ég held að það sé mikill möguleiki á því að laumufarþegi hafi verið um borð og sérstaklega í ljósi þess að engin stjórnvöld
hafa sýnt áhuga á að rannsaka það“, segir Baum.
Í lokasýrslu vegna flugs MH370, sem kom út í lok júlí, kemur fram að um borð í þotunni hafi verið 239 manns og þar af 227
farþegar og tólf manna áhöfn en ekki er talið að neinn annar hafi verið um borð sem hafi komist í flugvélina með ólögmætum
hætti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.