flugfréttir
Prófunum lokið með ARJ21 þotuna í miklum hita
ARJ21 þota Chengdu Airlines
Kínverski flugvélaframleiðandinn Comac hefur lokið við prófanir með ARJ21 flugvélina í miklum hita en tilraunirnar fóru fram á Turpan Jiaohe flugvellinum í Xinjiang-hérðaði í Kína.
Comac segir að prófanirnar núna gangi að mestu leyti út á að gera tilraunir með þær breytingar
sem gerðar hafa verið ýmsum kerfum vélarinnar sem er ætlað að gera ARJ21 þotuna
hagkvæmari í rekstri.
Comac hefur ekki gefið upp neinar ítarlegar upplýsingar varðandi þær breytingar en í fyrra
tilkynnti framleiðandinn að til stæði að einblína á uppfærslur á kerfum árið 2018 auk
þess að draga úr þyngd vélarinnar.
ARJ21 þotan kom meðal annars við á Íslandi þar sem hún gekkst undir prófanir í
hliðarvindi á Keflavíkurflugvelli í mars á þessu ári.
Framleiddar hafa verið átta eintök af ARJ21 þotunni en fimm hafa verið afhentar til
kínverska flugfélagsins Chengdu Airlines á meðan þrjár tilraunarþotur gangast nú undir
flugprófanir.
Comac hefur fengið pantanir í 127 þotur til viðbótar af ARJ21 og þá hefur verið gert samkomulag
um kaup á 399 þotum sem eru óstaðfestar pantanir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.