flugfréttir
FBI ræðir við flugvallarstarfsfólk
FBI mun safna saman upptökum úr öryggismyndavélum og fara yfir samtöl sem áttu sér stað í tengslum við atvikið
Bandaríska alríkislögreglan (FBI) ræður nú við starfsfólk á Seattle-Tacoma flugvellinum auk starfsfólks hjá Alaskan Airlines og Horizon Air í tengslum við atvikið sem átti sér stað þann 10. ágúst er flugvallarstarfsmaður stal farþegaflugvél af gerðinni Bombardier Q400 og flaug henni þar til hún brotlenti.
Þá er FBI að safna saman upptökum úr öryggismyndavélum og fara yfir samtöl sem áttu sér stað í tengslum við atvikið
og hefur alríkislögreglan staðfest að sá sem flaug vélinni hét Richard Russell.
„FBI er enn að bíða eftir niðurstöðum varðandi dánarorsök. Við teljum að hann hafi verið einn í flugvélinni“, segir í
yfirlýsingu frá alríkislögreglunni.
Verið er að setja upp tímalínu til að hægt verði að gera sér grein fyrir atburðarrásinni og fara yfir hverjir gætu
talist ábyrgir fyrir atvikinu.
„Tilgangur allra rannsókna á vegum FBI er að komast að því hvort um glæpsamlegt athæfi sé að ræða og hvort
aðrir tengjast því og bera kennsl á gerendur“, segir í yfirlýsingunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.