flugfréttir

Í mál við Ryanair vegna raskana á flugi í kjölfar verkfalla

- Telja sig ekki þurfa að greiða farþegum bætur vegna „utanaðkomandi“ áhrifa

15. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:44

Boeing 737-800 þota Ryanair

Ryanair hefur fengið á sig lögsóknir vegna fjölda flugferða sem félagið hefur þurft að fella niður vegna verkfallsaðgerða flugmanna.

Það er flugbótafyrirtækið Flightright í Þýskalandi sem hefur höfðað mál gegn Ryanair fyrir hönd farþega og er farið fram á að þeim verði greiddar bætur vegna þeirra seinkanna og þeirra flugferða sem felldar hafa verið niður vegna verkfallsaðgerða.

Flightrights segir að Ryanair geti ekki komist hjá því að greiða bætur og vitnað í reglugerð félagsins sem kveður á um að félagið sé ekki skaðabótaskylt er kemur að verkfallsaðgerðum.

Fyrirtækið kennir Ryanair um hvernig staðan er og sakar flugfélagið um að vera ábyrgt fyrir öllum þeim verkfallsaðgerðum sem flugmenn félagins hafa gripið til vegna óánægju með kjaramál og mál sem snýr að rétti þeirra til að vera meðlimir í verkalýðsfélagi.

Ryanair telur sig vera í fullum rétti og uppfylla reglugerðir Evrópusambandsins varðandi skaðabætur til farþega samkvæmt EU261 reglugerðinni sem kveður á um að flugfélag þarf ekki að greiða bætur vegna utanaðkomandi áhrifa sem félagið hefur ekki stjórn á.

„Ef þetta væri eitthvað sem við myndum ráða við þá væru öll flug á áætlun og engar seinkanir eða raskanir“, segir í tilkynningu frá Ryanair.

Á síðastliðnum dögum hafa flugmenn Ryanair átt í verkfallsaðgerðum á Írlandi, í Belgíu, Hollandi og Þýskalandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga