flugfréttir
Air Force Two á leið í andlitslyftingu
- Boeing fær 1.7 milljarð króna til þess að skipta út innréttingum á C-32A
Boeing C-32A, ein af forsetaflugvélum Bandaríkjanna
Boeing hefur fengið 16 milljónir bandaríkjadali, eða 1.7 milljarð króna, frá ríkistjórn Bandaríkjanna til þess að gera endurbætur á forsetaflugvélinni, „Air Force Two“, en Donald Trump, Bandaríkjaforseti, vill að flugvélin verði „meira forsetalegri“.
Air Force Two er Boeing C-32A vélin sem byggir á Boeing 757-200 en þotan er aðallega notuð af varaforseta Bandaríkjanna.
Til stendur að skipta út innréttingum og útbúnaði um borð í vélinni í samræmi við VC-25A júmbó-þotuna sem einnig
er þekkt sem „Air Force One“.
Air Force Two verður tekin í gegn á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum og þar á meðal í Oklahoma City en talið
er að verklok verði í ágúst á næsta ári.
Bandaríska forsetaembættið tók við vélinni árið 1998 og hafa bæði varaforsetar Bandaríkjanna og eiginkona forseta
notað þotuna í erindargjörðum og í opinberum heimsóknum auk þingamanna og ráðherra bandaríska þingsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.