flugfréttir

Flugmannaskortur í baráttunni við skógarelda

- Ekki nógu margir flugmenn til að fljúga slökkviliðsflugvélum í Kaliforníu

9. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:27

Skógareldar hafa aukist í Kaliforníu sl. ár og eru farnir að gera vart við sig einnig á veturnar

Flugmannaskorturinn í heiminum hefur ekki bara áhrif á flugfélögin en fyrirtæki eitt í Kaliforníu, sem sérhæfir sig í að slökkva skógarelda, hefur þurft að kyrrsetja nokkrar slökkviliðsflugvélar þar sem fyrirtækinu skortir flugmenn til að fljúga þeim.

Cal Fire sér um brunavarnir og slökkviliðsstörf er kemur að skógareldum sem hafa verið mjög tíðir undanfarin ár í Kaliforníu og gerast slíkir eldar skæðari með hverju árinu.

Slökkviliðsdeild Cal Fire í Sacramento hefur þurft að kyrrsetja sex Grumman S-2T flugvélar sem koma með sérútbúnum vatnstanki sem nemur næstum 20% flugflotans þar sem ekki eru nægilega margir flugmenn tiltækir.

Sex Grumman S-2T slökkviliðsflugvélar hafa verið kyrrsettar í ágúst í Kaliforníu vegna skorts á flugmönnum

Cal Fire hefur sl. ár misst 10 flugmenn sem hafa ýmisst látið af störfum sökum aldurs eða misst heilbrigðisskírteinið en þá lést einn í slysi á þessu ári og nokkrir hafa horfið á braut og þegið vinnu hjá flugfélögum.

Dennis Brown, yfirmaður yfir slökkviliðsflugdeild Cal Fire, segir að verið sé að þjálfa 8 flugmenn þessa daganna og sé stefnt á að ráða 40 flugmenn til viðbótar á næstu árum.

Brown bendir á að skógareldar séu ekki lengur eingöngu bundnir við sumartímann því skógareldar eru farnir að geysa einnig á veturnar og það í janúar sem er tímabil sem yfirleitt var frekar rólegt í slökkvistarfi og gengust flugvélarnar þá undir viðhald.

Grumman S-2T við slökkvistörf







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga