flugfréttir
Fyrsta risaþotan fyrir ANA flýgur sitt fyrsta flug
Fyrsta risaþotan fyrir ANA í jómfrúarfluginu um helgina
Fyrsta Airbus A380 risaþotan fyrir japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) flaug sitt fyrsta flug um helgina.
Risaþotan er sú fyrsta af þeim þremur sem ANA á von á en félagið fær þá fyrstu afhenta snemma á næsta ári.
Þotunni var flogið frá Airbus í Toulouse á dögunum til verksmiðjanna í Hamborg þar sem innréttingum var komið
fyrir um borð í vélinni sem síðan fór í sitt fyrsta flug.
Risaþotur ANA koma með sætum fyrir 520 farþega og verða þær með næstmesta sætjafjölda sem um getur en Emirates hefur þrettán Airbus A380 risaþotur sem eru útbúnar með sætum fyrir 615 farþega sem er mesti sætafjöldi sem farþegaþota tekur í dag.
Allar risaþoturnar þrjár, sem ANA mun fá afhentar, verða málaðar í sérstöku Hawaii-litaþema sem endurspeglar himinn, haf og sólarlag en þoturnar verða mikið notaðar í áætlunarflugi milli Tókýó og Hawaii-eyja.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.