flugfréttir
Fíkniefnalögreglan missti afl á mótor í Texas
- Flaug á rafmagnslínu og rakst utan í tvo bíla
Fram kemur að verið var að æfa snertiendingar þegar flugvélin missti afl á mótor
Að minnsta kosti einn lögreglumaður slasaðist lítillega er flugvél af gerðinni Cessna 206 á vegum fíkniefnalögreglunnar í Bandaríkjunum (DEA) brotlenti í gær í úthverfi Houston í Texas.
Fram kemur að verið var að þjálfa lögreglumenn í snertilendingum þegar flugvélin missti afl á mótor.
Flugmaður vélarinnar gerði tilraun til að nauðlenda á hraðbraut en vélin flaug á rafmagnslínur áður en hún brotlenti á umferðareyju skammt frá Sugar Land Regional flugvellinum.
Þrír voru um borð í flugvélinni og slasaðist einn lögreglumaður en meiðsl hans eru talin minniháttar. Flugvélin rakst utan í tvo bíla
sem urðu fyrir flugvélinni en ökumenn og farþega í bílunum sakaði ekki.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.