flugfréttir
Síðasta flug Azores Airlines með Airbus A310
Airbus A310 þotur Azores Airlines voru ekki málaðar í nýju litum félagsins með nýja nafninu
Flugfélagið Azores Airlines mun hætta með Airbus A310 þoturnar á morgun, 15. október, en félagið hefur haft þær í flota sínum í næstum tvo áratugi eða frá árinu 2000.
Síðasta flugið með Airbus A310, sem flogið verður á morgun, verður flogið með CS-TGV sem er síðasta eintakið
í flotanum en sú þota var smíðuð árið 1992 og var hún afhent ný til Air Afrique.
Átta árum síðar fór hún til Azores Airlines sem þá hét SATA International en félagið breytti um nafn árið 2016.
Azores Airlines var eitt af þeim átta flugfélögum sem hafa Airbus A310 enn í flotanum í dag en aðeins Air Transat,
Ariana Afghan Airlines, Iran Air, Mahan Air, Taban Air og Yemenia hafa þessar þotur enn í notkun í farþegaflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.