flugfréttir
JetBlue staðfestir pöntun í 60 Airbus A220-300 þotur
Tölvugerð mynd af Airbus A220-300 í litum JetBlue
Bandaríska flugfélagið JetBlue hefur staðfest pöntun í sextíu þotur af gerðinni Airbus A220-300 sem einnig er betur þekktar sem CSeries CS300.
Christian Scherer, rekstarstjóri JetBlue Airways, segir að engin þota á markaðnum
í dag bjóði upp á eins mikla hagkvæmni í þessum flokki líkt og Airbus A220-300 þotan
og uppfylli hún allar kröfur félagsins.
Airbus A220-300 þoturnar sextíu verða framleiddar í nýrri samsetningarstöð
í Mobile í Alabama þar sem Airbus framleiðir nú þegar Airbus A320 þotur fyrir
Ameríkumarkað en framkvæmdir við nýju verksmiðjuna hefst síðar í janúar.
Fram kemur að Airbus A220 þotan sé eina farþegaþotan á markaðnum í dag
sem er eingöngu ætluð fyrir 100 til 150 farþega markaðinn.
JetBlue hefur í dag 193 Airbus-þotur í flota sínum af gerðinni Airbus A320
og A321 en félagið á eftir að fá 85 þotur af gerðinni Airbus A321neo í flotann og hefjast
afhendingar á þeim á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.