flugfréttir

Boeing 737 MAX frá Ethiopian fórst skömmu eftir flugtak

- 157 manns um borð en enginn komst lífs af

10. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:29

Þotan sem fórst, ET-AVJ, á flugvellinum í Dublin í september í fyrra

Mannskætt flugslys átti sér stað í morgun er farþegaþota af gerðinni Boeing 737 MAX frá Ethiopian Airlines fórst skömmu eftir flugtak frá Addis Ababa í Eþíópíu.

Þotan var á leið til Nairobi í Kenýa með 149 farþega innanborðs og átta manna áhöfn og var flugvélin komin í 9.000 feta hæð þegar hún hvarf skyndilega af ratsjá klukkan 5:44 að íslenskum tíma.

Björgunarlið og viðbragðsteymi var ræst út að slysstaðnum sem er nálægt bænum Bishoftu, suður af höfuðborginni, og hefur verið staðfest að enginn komst lífs af og létust allir þeir 157 sem voru um borð í þotunni.

Þetta er annað flugslysið í sögu Boeing 737 MAX sem er tiltölulega ný flugvélategund en ekki eru tvö ár frá því að þotan kom á markað í maí árið 2017 en þota sömu gerðar fórst hjá Lion Air þann 29. október í fyrra en í því slysi létust 189 manns.

Frá slysstað í morgun í Eþíópíu

Boeing 737 MAX var mikil til umræðu í kjölfar þess slyss og beindist umræðan sérstaklega að MCAS-kerfi vélarinnar sem talið er hafa átt orsök af því slysi. Erlendir flugfréttamiðlar segja að slysið í morgun eigi sennilega eftir að verða enn meira högg fyrir velgengni þotunnar gagnvart Boeing.

Flugslysið í morgun er sagt vera það mannskæðasta í sögu Eþíópíu en þotan hvarf af ratsjá sex mínútum eftir flugtak. Ljósmyndir af slysstað sýna stóran gíg í jörðinni og hvergi má greina stóran hluta úr þotunni og eru aðeins mikið af litlu braki á víð og dreif.

Þota Ethiopian Airlines bar skráninguna ET-AVJ og var hún aðeins 4 mánaða gömul. Þotan var framleidd í október í fyrra í verksmiðjunum Boeing í Renton og var hún afhent til Ethiopian Airlines þann 15. nóvember 2018.

Farþegarnir um borð í þotunni voru af 33 þjóðernum en þar á meðal voru þrjátíu og tveir frá Kenýa, 17 frá Eþíópíu, átta Kínverjar og tveir frá Ísrael.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga