flugfréttir

Stýrisstillar þotunnar virðast hafa verið í óeðlilegri stöðu

- Boeing hyggst koma með uppfærslu innan 10 daga

16. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:01

Boeing 737 MAX 8 tilraunarþota Boeing

Flugslysasérfræðingar í Eþíópíu hafa fundið hluta af stélfleti Boeing 737 MAX þotu Ethiopian Airlines, sem fórst þann 10. mars sl. og kemur fram að stýrisstillar („trim“) á stélfletinum hafa verið í óeðlilegri stöðu sem svipar til stýrisstilla sem fundust í braki Boeing 737 MAX þotu Lion Air sem fórst í Indónesíu í október í fyrra.

Þetta er haft eftir tveimur heimildarmönnum sem koma að rannsókn á vettvangi í Eþíópíu og kemur fram að skrúfgangur, sem gengur fram og aftur og færir stýrisstilla til og frá, hafi verið í framarlegri stöðu sem bendir til þess að hið svokallaða MCAS-kerfi hafi verið að ýta stýrisstillum aftur á bak sem myndi setja þotuna í dýfu með nefið niður á við líkt og talið er að hafi orsakað flugslysið hjá Lion Air.

Síðasti flugferillinn svipaður og hjá þotu Lion Air

Þá kemur fram að flugferlar Boeing 737 MAX þotnanna tveggja sem fórust hafi verið mjög svipaðir en dagblaðið The Seattle Times birti í gær tvö gröf sem sýna bæði flughæð og lóðréttan flughraða Boeing 737 MAX þotu Lion Air og Ethiopian Airlines sem þykja keimlíkir og voru þessar upplýsingar, sem fengnar eru úr gervitunglum, ástæða þess að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ákváðu sl. miðvikudag að fara fram á kyrrsetningu Boeing 737 MAX þotunnar í Bandaríkjunum.

Ef þetta reynist vera rétt þá bendir margt til þess að orsök flugslyssanna tveggja, í Eþíópíu og í Indónesíu, hafi verið MCAS-kerfið sem Boeing hefur verið gagnrýnt fyrir en framleiðandinn hefur verið sakaður um að hafa leynt virkni kerfisins fyrir flugfélögum og ekki tilgreint það og hlutverk þess sem hluta að þjálfun flugmanna.

Frá slysstað í Eþíópíu þar sem Boeing 737 MAX þota Ethiopian Airlines fórst

Boeing lýsti því yfir í gær að framleiðandinn ætli sér að koma með uppfærslu á MCAS-kerfinu á næstu 10 dögum og er það haft eftir ónafngreindum aðila að FAA ætli sér að samþykkja nýju uppfærsluna þann 25. mars næstkomandi.

Það mun þó ekki þýða að kyrrsetningu Boeing 737 MAX verði aflétt eftir tíu daga og hafa einhverjir sérfræðingar spáð því að það gæti tekið alveg frá 3 upp í sex mánuði fyrir FAA að gefa út vottun fyrir uppfærslunni.

Frá vettvangi þar sem starfsmenn og sérfræðingar vinna að því að taka saman brak úr vélinni







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga