flugfréttir
Elsta núverandi DC-10 þota heims flýgur síðasta flugið
- Hefur flogið í 48 ár eða frá árinu 1971
N365FE sést hér í litum United Airlines, sem N1802U, í lendingu í Fort Lauderdale í janúar árið 1993
Elsta fljúgandi DC-10 breiðþota heims, flaug sitt síðasta flug sl. föstudag, eftir að hafa flogið um háloftin í 48 ár en þó með stoppi inn á milli.
Þotan, sem ber skráninguna N365FE, hefur flogið heimshornanna á milli í 22 ár hjá FedEx en um helgina
var komið að síðustu flugferðinni frá höfuðstöðvum vöruflutningarisans í Memphis til flugvélakirkjugarðsins í Victorville.
N365FE var sjötta DC-10-10 þotan sem kom út af færribandinu í McDonnell Douglas-verksmiðjunum í Long
Beach í Kaliforníu en hún var upphaflega afhent ný til United Airlines árið 1971.
N365FE í flugtaki í Fort Lauderdale í maí í fyrra
Þrátt fyrir háan aldur þá hefur þotan aðeins haft einn fyrri eiganda þar sem United Airlines
hafði þotuna í flotanum í 26 ár eða til ársins 1997 en þá var hún seld til FedEx og breytt í fraktflugvél.
FedEx hefur fleiri gamlar DC-10 breiðþotur í flota sínum sem eru komnar til ára sinna en DC-10 þota númer 17
sem smíðuð var er enn í umferð og er stefnt á að fljúga henni einnig til hinstu hvílu á næstunni en sú
þota var smíðuð árið 1971.
Ekkert farþegaflug er flogið lengur í heiminum með DC-10 en flugfélagið Biman Bangladesh flaug síðasta DC-10-flugið
með farþega þann 1. desember árið 2013.
Sama flugvélin á flugvellinum í San Diego í mars árið 1977
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.