flugfréttir

FAA fundar með flugmönnum og flugfélögum varðandi 737 MAX

13. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:15

Boeing 737 MAX flugfloti Southwest Airlines

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) kölluðu flugmenn og rekstrardeildir þeirra flugfélaga, sem hafa Boeing 737 MAX í flota sínum, til fundar í gær sem fram fór í Washington D.C. þar sem farið var yfir kyrrsetningu Boeing 737 MAX vélanna.

Þrjú mál voru á dagskrá sem voru bráðabirgðarskýrslur í kjölfar flugslysanna tveggja, uppfærsla á stjórnkerfum flugvélanna og þjálfun flugmanna.

Dan Elwell, yfirmaður FAA, sagði að stofnunin vildi fá að heyra skoðanir flugmanna og flugfélaganna á stöðu Boeing 737 MAX og hvort það væru einhver atriði sem þeim finnst að stofnunin ætti að gera áður en FAA tekur þá ákvörðun að aflétta kyrrsetningunni.

FAA segir að stofnunin sé enn að fara yfir og skoða uppfærsluna á MCAS-kerfinu sem sagt er að hafa spilað stór hlutverk í báðum flugslysunum og sé nú þegar búið að framkvæma yfir 90 prófanir á flugvélinni með nýju uppfærslunni á MCAS-kerfiknu.

Southwest gerir ekki ráð fyrir að fljúga 737 MAX fyrr en í ágúst

Southwest Airlines segir að félagið hafi til að mynda aflýst 2.800 flugferðum og hafi farið á mis við tekjur upp á 17,8 milljarða króna vegna þessa en félagið hefur ákveðið að gera ekki ráð fyrir notkun á Boeing 737 MAX í leiðarkerfinu fyrr en í fyrsta lagi í ágúst sem er tveimur mánuðum lengur en American Airlines og United Airlines sem gera ráð fyrir að fljúga 737 MAX aftur í júní.

Dennis Tajer, flugstjóri hjá American Airlines á Boeing 737 MAX, sagði í viðtali eftir fundinn að þetta snýst allt um að ná að gera þetta rétt þar farþegar þurfa að vera vissir um að það sé í lagi að fljúga með flugvélinni á ný.

„Ef eða þegar flugvélin flýgur aftur á ný þá munu farþegar horfa á mig í augun og spyrja: „Kapteinn, erum við í góðum málum núna? - Ég mun ekki kvitta í bókina nema að ég geti svarað þeim: „Já, þetta er í lagi núna. Ég er með þér í þessari flugvél“, segir Tajer.

Í dag er einn mánuður liðinn frá því að Boeing 737 MAX þoturnar voru kyrrsettar í Bandaríkjunum og hefur kyrrsetningin haft víðtæk áhrif á rekstur margra flugfélaga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga