flugfréttir
Etihad tilbúið í að endurfjárfesta í Jet Airways
Etihad Airways á 24% hlut í Jet Airways
Etihad Airways hefur gefið í skyn að félagið sé reiðubúið í að fjárfesta enn frekar í indverska flugfélaginu Jet Airways
og setja ferskt rekstrarfé inn í rekstur félagins en Jet Airways hætti öllu áætlunarflugi þann
17. apríl eftir
að nokkrar flugvélaleigur sóttu flugvélar sínar úr flotanum vegna ógreiddra leigugjalda.
Etihad segir að félagið sé tilbúið í að endurfjárfesta í félaginu en Etihad á 24 prósenta hlut í félaginu og hafa farið fram margir fundir að undanförnu með öllum hluthöfum varðandi lausn til þess að tryggja rekstur félagsins.
Etihad Airways tekur fram að félagið geti ekki verið eini hluthafinn og komið Jet Airways til bjargar án aðstoðar og
þyrfti því að fá öfluga fjárfesta til að koma að því að fjárfesta á móti þeim.
Etihad hefur sjálft átt erfitt uppdráttar og hafa mörg flugfélög í Miðausturlöndum og í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum séð samdrátt að undanförnu, öfugt við þá stöðu sem hefur verið upp á teningnum sl. ár.
Bankinn, The State Bank of India, hefur tilkynnt að tveir fjárfestar hafi sent inn tilboð í Jet Airways og sé verið
að fara yfir þær umsóknir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.