flugfréttir

American sagt ætla að panta Airbus A321LR og A321XLR

9. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 15:07

Airbus A321neo þota American Airlines

American Airlines er sagt vera að íhuga að leggja inn pöntun í Airbus A321LR þotuna eða jafnvel Airbus A321XLR og kemur fram að félagið eigi í viðræðum við flugvélaframleiðandann varðandi pöntunina.

Fram kemur að American Airlines ætli sér að nota Airbus A321LR til þess að skipta út þeim Boeing 757 þotum sem félagið hefur en Boeing 757 floti félagsins telur 34 þotur.

Airbus A321XLR er langdrægari útgáfa af Airbus A321LR og er talið að sú þota muni koma á markaðinn árið 2023 en A321XLR verður langdrægasta farþegaþota í heims í flokki meðalstórra farþegaþotna með flugdrægi upp á 5.100 mílur sem samsvarar 9.400 kílómetrum.

American Airlines lagði á sínum tíma inn pöntun í 100 Boeing 737 MAX 8 þotur og hefur félagið fengið 24 slíkar afhentar sem allar eru nú kyrrsettar líkt og aðrar Boeing 737 MAX þotur í heiminum.

Þær þotur hefur American Airlines verið að nota til að skipta út Boeing 737-800 þotunum en Airbus A321LR og A321XLR hafa þó mun lengra flugdrægi.

Þá á American Airlines einnig von á 100 þotum frá Airbus af gerðinni Airbus A321neo og hefur félagið fengið fjórar afhentar af þeirri gerð.

Fram kemur að mögulega muni American Airlines leggja inn pöntunina í Airbus A321LR á flugsýningunni Paris Air Show sem hefst síðar í þessum mánuði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga