flugfréttir

Yfirmenn hjá Boeing, Ryanair og Norwegian stíga til hliðar

- Rekstarstjóri Ryanair, forstjóri Norwegian og yfirmaður 737 MAX munu hætta

12. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:52

Frá vinstri: Eric Lindblad, yfirmaður yfir 737 MAX deildinni hjá Boeing, Peter Bellew, rekstrarstjóri Ryanair og Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian

Þrír yfirmenn í flugiðnaðinum hafa sl. sólarhring tilkynnt að þeir muni yfirgefa yfirmannastöður sínar ýmist strax eða á næstunni.

Um er að ræða yfirmann yfir 737 MAX deildinni hjá Boeing, rekstarstjóra Ryanair sem mun segja skilið við lágfargjaldafélagið írska fyrir lok ársins og þá tilkynnti Bjørn Kjos að hann muni hætta sem framkvæmdarstjóri Norwegian eftir 17 ár í forstjórastólnum.

Norwegian, Boeing og Ryanair hafa öll gengið í gegnum misjafna erfiðleika að undanförnu en mestur er þó vandinn þessa daganna hjá Boeing sem hefur valdið Norwegian fjárhagstjóni vegna kyrrsetningarinnar á 737 MAX þotunni. Ryanair hefur átt erfiðari tíma en rekstur félagsins í dag er þó mun stöðugri miðað við sem áður var.

Lindblad hættir sem yfirmaður yfir 737 MAX deildinni

Eric Lindblad, yfirmaður yfir 737 MAX deildinni hjá Boeing, mun láta af störfum sem forsvarsmaður verkefnisins og er hann annar yfirmaðurinn sem hefur yfirgefið sæti formanns 737 MAX deildarinnar á aðeins tveimur árum.

Fram kemur að brottför Lindblad hafi ekkert með erfiðleikana í kringum Boeing 737 MAX að gera en hann hefur starfað hjá Boeing í 34 ár og meðal annars sem yfirmaður yfir Boeing 777X verkefninu áður en hann fór yfir í Boeing 737 MAX deildina.

Hættir hjá Norwegian eftir 17 ár

Bjørn Kjos þekkja flestir og jafnvel þeir sem fylgjast lítið með flugi. Kjos hefur verið einn helsti frumkvöðull Noregs í flugmálum og hefur hann verið andlit Norwegian í mörg ár en hann var einn af stofnendum félagsins.

Geir Karlsen, fjármálastjóri Norwegian, mun taka við formennsku tímabundið á meðan leit stendur yfir að nýjum framkvæmdarstjóra og þá mun Niels Smedegaard, forstjóri félagsins, einnig aðstoða Karlsen við að fylla skarð Kjos fyrst um sinn. 

Rekstur Ryanair varð stöðugri eftir að Bellew tók við

Ryanair reyndi strax um haustið 2017 að fá Peter Bellew til sín frá Malaysian Airlines eftir að Michael Hickey, þáverandi rekstrarstjóri félagsins, sagði starfi sínu lausu.

Bellew hefur yfir 30 ára reynslu af rekstri flugfélaga og starfaði hann áður hjá flugrekstardeild Ryanair frá árinu 2006 til 2015 en hann fór yfir til Malaysia Airlines eftir tvær hörmungar sem dundu á félaginu árið 2014.

Bellew gekk til liðs við Ryanair í desember árið 2017 og í dag hefur rekstur félagsins verið mun stöðugri og hefur félagið meðal annars viðurkennt verkalýðsfélög og komið á fót starfsmannasamningum fyrir áhafnir og flugmenn á flestum bækistöðvum. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga