flugfréttir
Sækja um leyfi fyrir notkun á norðurbrautinni á Gatwick
Gatwick-flugvöllurinn í London
Stjórn Gatwick-flugvallarins hefur hafið undirbúning á því að taka aftur í notkun norðurflugbrautina á vellinum sem í dag er einn fjölfarnasti flugvöllur heims í flokki flugvalla sem hefur eina flugbraut.
Formleg umsókn hefur verið send inn til viðkomandi nefndar undir heiti verkefnisins sem nefnist „Gatwick
Airport Northern Runway“ sem er hluti að þeirri framtíðaráætlun sem Gatwick-flugvöllurinn kynnti í júlí í sumar.
Stefnt er að því að norðurflugbrautin verði tekin í notkun um mitt árið 2020 sem varaflugbraut sem hægt
er að nota þegar þörf krefur og árið 2025 á brautin að vera komin í fulla notkun og þá aðallega notuð af minni flugvélum.
Aðalflugbrautin á Gatwick, 08R/26L brautin, er 3.316 metrar á lengd á meðan norðurbrautin, sem ekki er notuð í dag, er 2.565 metrar en aðeins eru um 200 metar sem skilja brautirnar frá hvor annarri sem stangast á við öryggisreglur eins og staðan er í dag er kemur að lendingum og flugtökum á sama tíma á báðum brautum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.