flugfréttir
Síðasta flug Travolta með 707 til Ástralíu tefst vegna viðhalds
- Kostar um 250 milljónir króna að koma þotunni í lofthæft ástand á ný
Flugsafnið í Ástralíu gæti þurft að bíða fram á næsta ár eftir að fá Boeing 707 þotuna en biðin tekur einnig á fyrir leikarann
Allt bendir til þess að ekki verði hægt að ferjufljúga Boeing 707 þotu John Travolta sem hugðist fljúga þotunni frá Bandaríkjunm til Ástralíu í nóvember og það í síðasta sinn.
Travolta, sem er einn þekktasti „fljúgandi“ kvikmyndaleikari Hollywood, gaf Boeing 707 þotuna árið 2017
til flugsafnsins Historic Aircraft Restoration Society (HARS) og stóð til að afhenda hana til safnsins í haust en Travolta hefur í mörg ár verið
sérstakur sendiherra fyrir Qantas og haldið uppi heiðri félagsins með þotunni sem er í hans eign í dag.
Að koma „gjöfinni“ til flugsafnsins ætlar þó að verða dýrkeypt þar sem þotan hefur safnað köngulóarvefjum á flugvelli
í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum vegna atriða sem þarf að lagfæra en að koma þotunni í lofthæft ástand á ný til
þess að hún uppfylli allar kröfur flugmálayfirvalda er kostnaðarsamt.
John Travolta hefur sl. ár flogið N707JT, Boeing 707 þotu, í litum Qantas sem einskonar sendiherra fyrir félagið
Að mati John Dennis, flugstjóra hjá Qantas, sem hefur séð um verkefnið í kringum Boeing 707 þotu Travolta,
þá telur hann að það muni kosta í kringum 250 milljónir króna að koma þotunni aftur í það ástand til að uppfylla kröfur flugmálayfirvalda.
Travolta hefur þegar tekið sér mánaðarleyfi frá tökum á nýjustu kvikmyndum hans til þess að vinna í því að ferja
vélina til Ástralíu en hann ætlaði einnig að halda fyrirlestra í Sydney og í Melbourne og koma fram á Comic Con ráðstefnu í Brisbane og verða viðstaddur viðburð í Adeleide.
N707JT var smíðuð af Boeing árið 1964
Hópur flugvirkja í Bandaríkjunum auk vélfræðinga sem eru komnir á eftirlaunaaldur vinna nú að því að koma þotunni aftur í lofthæft ástand
svo hægt sé að ferja hana til Ástralíu á næsta ári þar sem útséð er um að það verði á næstunni.
Boeing 707 þotan, sem ber skráninguna N707JT, var upphaflega afhent til Qantas árið 1964 en félagið fór inn í þotuöldina árið 1959 með Boeing 707 þotunum og
voru vélarnar í flota Qantas til ársins 1979.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.