flugfréttir

Ballarin átti fund með Flugfélaginu Erni

- Forsvarsmenn Ernis höfðu ekki áhuga á hugmyndum Ballarin

30. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:18

Michelle Ballarin vinnur nú að því að koma WOW air aftur á fót

Michelle Ballarin, bandaríska kaupsýslukonan, sem stefnir á að endurreisa WOW air, átti fund með forsvarsmönnum flugfélagsins Ernis, þar sem hún ræddi hugmynd sína um að kaupa flugfélagið íslenska.

Þetta kemur fram í fréttum RÚV og segir Hörður Guðmundsson, stofnandi Ernis, að Ballarin hafi haft í huga að komast yfir flugrekstarleyfi Ernis sem meðal annars nær yfir rétt á flugi til Evrópulanda.

Nýja WOW air félagið, sem einnig hefur verið kallað WOW 2, mun eingöngu hafa rétt á því að fljúga milli Íslands og Bandaríkjanna þar sem skráðar höfuðstöðvar félagsins eru í Baltimore en til þess að geta flogið frá Íslandi áfram til Evrópu þarf félagið að tryggja sér íslenskt flugrekstarleyfi.

Hörður segir að ekki hafi verið áhugi fyrir hendi hjá Erni fyrir frekari samstafi og hafi fundur, sem átti sér stað fyrr í þessum mánuði, tekið enda án frekari viðræðna.

„Við hlustuðum á hvað var þarna á ferðinni og hún bar ákveðnar hugmyndir á borð en okkur fannst það ekki henta okkur að fara í frekari viðræður á þessum grundvelli.“, segir Hörður í viðtali við fréttastofu RÚV.

Upphaflega stóð til að fyrstu flugferðirnar á vegum WOW 2 milli Baltimore og Íslands myndu hefjast í byrjun október en síðar var tilkynnt að það myndi frestast fram í miðjan október.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga