flugfréttir
El Al hættir með júmbó-þotuna í nóvember
- Boeing 747 þotan hefur verið í flugflota félagsins frá árinu 1971
El Al Israel Airlines hefur haft júmbó-þotuna í flota sínum frá árinu 1971
El Al Israel Airlines mun hætta með júmbó-þotuna um næstu mánaðarmót og hefur flugfélagið ákveðið dagsetningu fyrir síðasta áætlunarflugið með Boeing 747.
El Al Israel Airlines tilkynnti fyrr á þessu ári um að til stæði að hætta með júmbó-þotuna
en þá voru þrjár Boeing 747 þotur eftir í flotanum en félagið hefur aðeins eina eftir í dag.
Síðasta áætlunarflugið með Boeing 747-400 verður flug milli Tel Aviv og Rómar þann 1. nóvember
en þann 3. nóvember flýgur júmbó-þotan svo til baka frá Róm til Tel Aviv og verður þotan
tekin úr leiðarkerfinu eftir það flug.
Síðasta flug El Al Israel Airllines verður flogið þann 3. nóvember
Síðasta júmbó-þotan í flota félagsins ber skráninguna 4X-ELC og kom hún í flota
El Al Israel Airlines árið 1995 en félagið fékk fyrstu júmbó-þotuna í flotann árið 1971
sem var af gerðinni Boeing 747-200.
Félagið mun skipta júmbó-þotunni út fyrir Dreamliner-þotum af gerðinni Boeing 787-9 en
El Al hefur nú þegar ellefu slíkar í flotanum.
Boeing 747-200 þota El Al Israel Airlines á flugvellinum í Zurich árið 1985
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.