flugfréttir

SWISS kyrrsetur Airbus A220

15. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:32

Airbus A220 þota Swiss International Air Lines

Flugfélagið Swiss International Air Lines kyrrsetti í dag allar þær 29 Airbus A220 (CSeries) þotur sem félagið hefur í flotanum til að framkvæma skoðun á hreyflum vélanna í kjölfar nokkurra bilana sem hafa komið upp í flugi.

Seinasta atvikið átti sér stað í morgun er A220-300 þota SWISS þurfi að snúa við og lenda í París á leið sinni frá Genf til Heathrow-flugvallarins í London eftir að hvellur varð í vinstri hreyfli með eldglæringum út um útblástursopið.

Sambærilegt atvik átti sér stað hjá SWISS þann 27. september er þota sömu gerðar og á sömu flugleið var yfir Ölpunum er bilun varð í öðrum hreyflinum og þá átti annað atviki sér stað þann 25. júlí hjá félaginu.

Airbus A220 þoturnar hétu upphaflega CSeries

Hreyflarnir á Airbus A220 þotum SWISS eru framleiddir af Pratt & Whitney og segir flugfélagið að til stendur að skoða gaumgæfilega alla hreyflana og munu þoturnar ekki hefja sig á loft á ný fyrr en skoðun er lokið og fullvíst er að vélarnar séu öruggar.

„SWISS tekur þessum atvikum mjög alvarlega og við erum í nánum samskiptum við Pratt & Whitney, yfirvöld og við Airbus í Kanada“, kemur fram í yfirlýsingu.

Flugfélagið mun þurfa að fella niður allar flugferðir með Airbus A220 þotunum á næstunni en ekki er vitað hversu margar flugferðir þarf að fella niður en farþegar verða bókaðir með öðru leiðum.

SWISS hefur 29 Airbus A220 þotur í flotanum en af þeim eru níu af gerðinni A220-100 og tuttugu af gerðinni A220-300.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga